Collection: JÓLAKÚLURNAR 2024 - ÓSK
Jólamunstrið árið 2024 ber nafnið „Ósk”.
Fyrstu kúlurnar fara að venju í sölu á Útgáfugleðinni í Sigluvík 8.-10. nóv. Kúlurnar eru svo væntanlegar í sölu hér í netverslun og á vinnustofunni 12. nóvember.
Linda Óla hannar nýtt munstur á hverju ári og handmálar á hágæða jólakúlur úr gleri. Hver árgangur er í takmörkuðu upplagi þar sem hver kúla er einstök, því engar tvær eru með sömu litasamsetningunni. Ósk er 9. munstrið í þessari seríu. Öll munstrin einkennast af hringmunstrum innblásnum úr íslenskum hannyrðum. Hver kúla er undirritaðuð af listamanninum með ártali og pökkuð í vandaðan kassa.
Einnig er hægt að bæta við persónulegri áletrun á kúlurnar.
https://lindaola.is/collections/skrautritun/products/merking-a-jolakulu-br-1-lina-midjud
- Page 1 of 2
- Next page