ATH! VINNUSTOFAN VERÐUR LOKUÐ 4.-15. DESEMBER! Netverslunin er opin og verða pantanir á vörum sem til eru á lager (Blek og skriffæri, jólakúlur, myndlist) afgreiddar eins og venjulega. Vörur sem þarf að vinna sérstaklega (kerti, bækur og skrautritun) verða afgreidd eftir 15.des.

Collection: JÓLAKÚLURNAR 2025 - ÁST

AFSAKIÐ HLÉ!

Nú eru jólakúlurnar að gera sig klárar á sýningu Norðlenskrar hönnunar og handverks í Hlíðarbæ 6. og 7. des. Þar sem eingöngu er til eitt eintak af hverri kúlu er því miður ekki hægt að halda utan um sölu á netinu á sama tíma. Kúlurnar hafa því verið teknar úr sölu hér í netverslun tímabundið. Við munum yfirfara allt eftir sýningu að uppfæra netverslun strax á mánudag.  Verið hjartanlega velkomin til okkar á sýninguna um helgina, þar verður opið kl. 11-17 báða dagana. 

Jólamunstrið árið 2025 ber nafnið „Ást”.

Ég hanna nýtt munstur á hverju ári og handmála á hágæða jólakúlur úr gleri. Hver árgangur er í takmörkuðu upplagi þar sem hver kúla er einstök, því engar tvær eru með sömu litasamsetningunni. Ást er 10. munstrið í þessari seríu. Öll einkennast þau af hringmunstrum innblásnum úr íslenskum hannyrðum. Hver kúla er undirritaðuð af listamanninum með ártali og pökkuð í vandaðan kassa. 

Hönnunin í ár stendur hjarta mínu afar nærri. ❤️ Munstrið hannaði ég í hlýrri minningu um elsku hjartans Heimi minn, ástina í mínu lífi, sá sem færði mér ástina…. og jólin.🎄

Við hjónin höfum alltaf haft dálæti á fallegum jólakúlum. Fyrstu jólin okkar saman – þá var ég aðeins sextán ára – ákváðum við að byrja að safna einni fallegri kúlu á ári. Sú hefð hefur haldist alla tíð okkar saman. Stundum urðu kúlurnar aðeins fleiri, ef okkur þótti ástæða til, en aldrei færri en ein. Það er eitthvað alveg sérstakt við að skreyta tréð með skrautinu sem safnast hefur saman í gegnum árin – hver hlutur með sína dýrmætu minningu.❤️🎄❤️

Kærar kveðjur
Linda Óla

Hægt er að kaupa aukalega persónulega áletrun á kúlurnar. 

https://lindaola.is/collections/skrautritun/products/merking-a-jolakulu-br-1-lina-midjud

0 Vörur

Því miður eru ekki til neinar vörur í þessum vöruflokki