
NÁMSKEIÐ Í BLACKLETTER SKRAUTSKRIFT
NETNÁMSKEIÐIÐ fer fram í beinu streymi á Zoom og í lokuðum hóp á Facebook.
Fyrir byrjendur
- Kennsla í beinni útsendingu 16. okt., 23. okt. og 6. nóv.
- Fimmtudaga kl. 19-21, Samtals 3 x 2 klst. U.þ.b 1 1/2 klst kennsla og 1/2 klst “Spurt og svarað” í upphafi og lok hvers tíma
- Staðsetning: Zoom netnámskeið, slóð og nánari upplýsingar verða send í tölvupósti. Námskeiðið verður tekið upp og aðgengilegt til að horfa aftur og aftur til 1. mars 2026
- Þáttakendur fá aðgang að lokuðum facebook hóp til að deila æfingum og fá endurgjöf til 1. mars 2026.
- Allt nauðsynlegt efni er innifalið og verður sent í pósti u.þ.b viku fyrir námskeiðið. Blekpennar, blek, æfingapappír, námskeiðsgögn ofl. skemmtiegt. Verðmæti um 15.000kr.
- Greiðsla gildir sem skráning á námskeiðið.
- Síðasti skráningardagur er 10. október.
- Kennari: Linda Óla
- Takmarkaður fjöldi á hverju námskeiði
Á námskeiðinu verður farið yfir:
- Efni, áhöld og undirbúning fyrir skrautritun.
- Grunnform Blackletter letursins, lágstafi, hástafi og tölustafi.
- Skreytingar og stílfæringar
Athugði að mörg stéttarfélög taka þátt í námskeiðskostnaði.