
GRADUATE DRAWING PAPER - BLACK
The Graduate drawing paper pappírinn er sléttur og þunnur, en sterkur 120gms svartur pappír. Frábær í blandaða tækni: tréliti, vatnsliti, tússpenna og þekjandi blek ofl. Fallega djúpur svartur liturinn og silkislétt áferðin draga fram liti og skerpu. Hentar mjög vel til að skrautskrifa á, t.d. með Coliro metallic vatnslitum og Bleedproof white bleki.
- Litur: djúpur svartur
- A4 blokk, límd á skammhlið. 20 arkir.
- Þyngd: 120 gsm
- Áferð: Sléttur
- Sýrufrír
- Framleidd í Frakklandi, FSC umhverfisvottað.