Skrautritun á síðu í bók/albúm
- Letur í svörtu.
- Litur á skrauti er í stíl við liti í munstrinu á kápunni nema óskað sé eftir öðru í útskýringum.
- Innifalið í verði eru 4 línur, sjá uppsetningu á myndum.
- Hámarksfjöldi stafa í línu er 20 stafir.
- Afgreiðslufrestur allt að 2 vikur.
Hægt er að kaupa skrautritun í aðrar bækur og koma bókinni sem skrifa á í til mín á vinnustofuna að Hafnarstræti 97, 2. hæð á Akureyri.
Hvernig panta á síður í bækur
- Veljið þá uppsetningu sem hentar. t.d. "1 lína efst"
- Veljið leturgerð sem óskað er eftir.
- Skrifið textann sem á á skrautrita í bókina í reitinn "texti og útskýringar" og tilgreinið á hvaða síðu í bókinni hann á að fara. Dæmi: Skrifið "#2: Gestir" ef textinn “Gestir” á að fara á síðu nr. 2 í bókinni.
- Athugið að hámarksfjöldi stafa í línu er mismunandi eftir uppsetningu. Þú finnur upplýsingar um það í vörulýsingunni hér að ofan.
- Lesið vel yfir textann og farið yfir stafsetningu áður en gengið er frá pöntun.
- Ef óskað er eftir fleiri síðum í sömu bókina er hægt að endurtaka þetta eins oft og þarf. t.d. velja aftur sömu uppsetningu og setja t.d. "#20: Gjafir" o.s.frv.